09.02.2012 13:04

Strokupilta leitað

Sveitir af svæði 9 og 10 leituðu í gærkvöldi tveggja drengja sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði fyrr um daginn, drengirnir voru raunar þrír en einn hafði gefið sig fram við lögreglu áður en sveitirnar voru ræstar út.  

Frá Strönd fóru 10 manns á tveim bílum og einn svæðisstjórnarmaður í stjórnstöð á Blönduósi.  Leitarsvæðið var Svartárdalur en vitað var af ferðum þeirra þar eftir að einn þeirra hafði gefið sig fram við lögreglu skammt frá bænum Barkarstöðum .  

Leit beindist í fyrstu að útihúsum og sumarhúsum á svæðinu þar sem möguleiki var á að þeir gætu leitað skjóls en drengirnir voru frekar illa klæddir til útiveru.  Drengirnir fundust svo síðar um kvöldið í veiðihúsi við Skeggstaði en þar höfðu þeir brotist inn og leitað skjóls töluvert þrekaðir eftir útiveru enda illa búnir til slíks eins og áður sagði. 

Alls komu um 60 björgunarsveitamenn að leitinni og má einnig nefna að notast var við hitamyndavélar við leitina en það er sennilega í fyrsta skipti sem það er gert að einhverju ráði við leit hér um slóðir. Komu þær vel út þó svo þær hafi ekki gert útslagið í þetta skiptið.

08.02.2012 13:35

112 dagurinn

112 dagurinn er laugardaginn 11. febrúar og af því tilefni verður opið hús í Bjarnabúð, húsi björgunarsveitarinnar frá kl. 14 - 16.  Þar verður hægt að skoða tæki og búnað frá björgunarsveitinni, sjúkrabíl RKÍ  og bíl slökkviliðsins á Skagaströnd.  Kaffi, vöfflur og djús fyrir þá yngri.  Hvernig er að vera slökkviliðsmaður?  Viltu prófa að fara í slökkviliðsgalla?  Hvað er hjartahnoð?  Hvernig er klifurbúnaður notaður?  Hvað er TETRA?  Svör við þessum spurningum og mörgum fleiri getur þú fengið ef þú lítur við á laugardaginn hjá okkur og kynnist því sem þessir aðilar eru að fást við í sínu starfi.  

 

                  Björgunarsveitin Strönd, Skagastrandardeild RKÍ og Slökkvilið Skagastrandar.



05.02.2012 23:27

Húnabjörg - útkall

Rétt fyrir kl. 15 í dag kom beiðni um að sækja Sæfara SK 112 en hann hafði þá fengi í skrúfuna um 13 sjómílur vestur frá Skagaströnd.  Húnabjörg lagði skömmu síðar úr höfn og var komin að Sæfaranum laust fyrir kl. 16 og tók bátinn í tog.  Veður var ágætt, suðvestlægur 3-5 m/s og sæmilegt í sjóinn.  Gekk ferðin til baka tíðindalaust og kom Húnabjörg til hafnar á Skagaströnd með Sæfarann rétt fyrir kl. 18 eftir rétt um þriggja tíma ferðalag. 


Sæfari Sk 112 í togi

04.02.2012 12:34

Klifuræfing í íþróttahúsinu

Góð mæting var á fyrstu sameiginlegu klifuræfingu hjá björgunarsveitunum Strönd og Húnum í íþróttahúsinu á Skagaströnd  laugardaginn 4. febrúar. 
Það mættu um tíu manns frá þessum tveim sveitum og skemmtu sér við klifur í klifurveggnum í um tvær klukkustundir. Voru sumir að prófa þetta í fyrsta skipti en mjög lítil þjálfun hefur verið í klifri hér hjá okkur í Strönd en hjá Húnum er töluvert meiri reynsla og þekking sem þeirra menn miðluð fúslega til okkar hinna. 
Að æfingu lokinni vor allir mjög ánægðir með þetta framtak og er vonandi að þetta skili sér í meiri áhuga þeirra sem æfa vilja klifur því æfingin skapar meistarann í þessu eins og öðru. Að lokum viljum við þakka sveitarfélaginu fyrir afnot af þessari frábæru klifuraðstöðu sem við eigum hér í íþróttahúsinu okkar. Hér má sjá myndir sem teknar voru á æfingunni.


01.02.2012 12:30

Línur og klifur um helgina

Núna um helgina, eða nánar til tekið  laugardaginn 4. febrúar kl. 10:00 verður æfing í íþróttahúsinu á Skagaströnd í línum og klifri. Við hvetjum alla til að mæta og hafa gaman af þessu með okkur - og auðvitað læra helling líka. Mannskapur frá Húnum á Hvammstanga ætlar líka að vera með okkur á æfingunni.

ATH. breyttur tími,  kl. 10:00

Nánari upplýsingar og skráning er hjá Kristjáni Pétri í síma 847-3606. Það er mikilvægt að skrá sig svo við vitum hve margir mæta. 


29.01.2012 17:38

Nokkur útköll

Nokkur útköll hafa verið hjá sveitinni nú síðustu dag en fæst alvarleg og aðallega um aðstoðarbeiðnir að ræða.

26. jan. Var óskað eftir aðstoð við sjúkrabíll  sem fara þurfti út á Skaga að sækja sjúkling en töluverð ófærð var og komst sjúkrabíllinn því frekar stutt og var sjúklingurinn sóttur á Ford Econoline bíl sveitarinnar en í hann er lítið mál að koma sjúkrabörum.  Var sjúklingurinn ferjaður inn á Skagaströnd þar sem læknir var á staðnum.

28. jan var útkall vegna vélsleðaslyss skammt frá Hvammstanga og voru sveitirnar hér og á Blönduósi ræstar til vonar og vara þar sem mest af tækjum og mannskap Húna á Hvammstanga var á æfingu á Arnarvatnsheiði þegar slysið bar að.  Húnarnir vor hinsvegar á niðurleið og hröðuðu heldur för og er ljóst var að þeir næðu til hins slasað á undan sveitunum héðan var þeim snúið við.  Hinn slasaði var fluttur á sjúkrahúsið á Hvammstanga með fót og handleggsbrot eftir að hafa ekið fram af hengju skammt fyrir ofan bæinn Syðri-Velli sunnan við Hvammstanga.   

29. jan. Var óskað eftir aðstoð við að ná í bíl sem skilinn var eftir norðan við Steinnýjarstaði  kvöldið áður af mönnum sem voru við veiðar á Langavatni. Höfðu þeir fest bílinn og affelgað og ákváðu að skilja hann eftir og fara til baka á öðrum bíl er þeir voru á.  Var farið á Ford í þetta verkefni og ekki veitti af því töluvert krap var og lítill snjór.  Gríðarlega hafði tekið upp og þar sem bíllinn stóð var nánast engin snjór lengur bara krapi og mikill vatnselgur um allt.  Farið var með auka dekk til að setja undir og  eftir smá bras við að tjakka bílinn upp þá komst dekkið undir og var þá haldið til baka og gekk það nokkuð vel. Þegar komið var til baka í hús var dekkinu komið á felguna aftur og undir bílinn og ætluðu ferðalangarnir svo að drífa sig í bæinn aftur eftir veiðiferð sem mest var tómt bras og basl og litla veiði.   

    Flettingar í dag: 236
    Gestir í dag: 98
    Flettingar í gær: 184
    Gestir í gær: 67
    Samtals flettingar: 175762
    Samtals gestir: 35385
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 23:09:32

    Nánari upplýsingar

    Nafn:

    Björgunarsveitin Strönd

    Farsími:

    894 4006

    Heimilisfang:

    Bjarnabúð Hafnarlóð 6

    Staðsetning:

    545 Skagaströnd

    Heimasími:

    452 2621

    Kennitala:

    410687-2169

    Tenglar