Pistlar

Af hverju er maður í björgunarsveit

Þetta er góð spurning til að velta fyrir sér og kannski öllum hollt að spá aðeins í það stundum, af hverju við erum að þessu.Maður heyrir stundum utanað sér  neikvæðar raddir sem segja að þetta séu menn sem eru bara að leika sér á dýrum tækjum upp um fjöll og firnindi, en ég vil nú meina að meira búi að baki en það.  Af hverju er ég í björgunarsveit? jú fyrst og fremst til að gera gagn og aðstoða náungan í neyð, því eins og sá veit sem reynt hefur er það mjög gefandi að veita öðrum aðstoð. Í öðru lagi er það félagsskapurinn. Félagsskapur fólks með það að markmiði að láta gott af sér leiða og hafa um leið ánægju af því sem maður er að gera.

Í þriðja lagi er það sameiginlegur áhugi á ferðamennsku og því sem henni fylgir, nefnilega tækjum og tólum. Þar erum við þá komin að því sem að oft er þyrnir í augum þeirra sem ekki skilja hlutina til fulls. Hvaða gagn er að fínum björgunartækjum ef enginn kann með þau að fara. Þar liggur nefnilega hundurinn grafinn, það þarf að kunna að fara með þessi tæki og hvernig læra menn það, jú með því að æfa sig. Þetta er eins og fótboltalið sem á fína búninga og góðan völl en þeir æfa aldrei og tapa því öllum leikjum af því þeir kunna ekki að spila. Þá kunna menn að segja sem svo, "það getur nú varla verið mikið mál að keyra einhvern jeppa upp á fjöllum, það ætti nú hver sem er að geta". Það er kannski ekki aðal málið að kunna að keyra þó að það sé til bóta þá  er svo margt annað  sem til þarf. Það þarf að kunna skil á staðsetningar og leiðsögutækjum og allri þeirri fjarskiptatækni sem að notuð er í dag í slíkum björgunartækjum. Það þarf líka að kunna að umgangast dýr björgunartæki af skynsemi og vita hvar mörkin milli þess hvað tækið getur og hvað það er ekki gert fyrir liggja.Og síðast en ekki síst þurfa menn að hafa bæði vilja og getu til að hjálpa fólki í neyð. 

Allt þetta og miklu meira þarf til þess að við sem gefum okkur út fyrir að hjálpa öðrum, getum þegar á þarf að halda gert hlutina rétt og á sem öruggastan hátt og það hefst ekki nema á einn máta, að æfa sig og kunna að fara með þau tæki og tól sem við höfum í höndunum og að mannskapurinn viti hvað hann er að gera. Ef við ekki kunnum að nota okkar tæki þá fer fyrir okkur eins og fótboltaliðinu óæfða, við töpum leiknum.

 

 Það er alltaf pláss fyrir gott fólk í félagsskap sem þessum en því miður vill það oft verða svo að okkur vantar fleiri virka félaga til að sinna störfum fyrir sveitina. Það endar því oft með því að allt  þetta starf lendir á örfáum einstaklingum og þá fara að heyrast raddir um að þetta sé orðinn klíka einhvera fárra  útvaldra. Útvaldir eru þeir kannski, en ekki endilega af eigin völdum heldur hinna sem af einhverjum ástæðum ekki nenna, vilja eða geta sinnt þessu starfi. Maður hefur heyrt skýringar eins og "það er aldrei kallað á mann nema þegar það þarf að gera eitthvað" og hvað er málið, er það ekki þetta sem menn voru að gefa sig í eða hvað, þetta er jú sjálfboðaliðastarf. Menn þurfa að vera virkir og mæta á vinnukvöld og taka þátt í starfi sveitarinnar ef þeir ætla að vera með í því sem gert er innan hennar raða. Þessir sem kallað er í þegar "eitthvað þarf að gera" eru þeir sem aldrei mæta af sjálfsdáðum og eru svo fúlir ef þeir missa af einhverju sem þeir hefðu viljað vera með í. Það er frekar leiðinlegt að heyra svona, þegar það er í flestum tilfellum þeim sjálfum um að kenna og engum öðrum. Vera virkur og þá er maður með!!  Það er helvíti hart ef að til þess kemur í náinni framtíð að það þurfi að skrapa saman í útköll. Gott fólk, rífa sig upp af sófanum og frá sjónvarpinu, hætta að sitja heima og leggja út á  hvað er gert og hvað ekki gert og mæta á þriðjudagsvöldum niður í björgunarsveitahús og taka til hendinni,  og ekki vera að væla þó að stundum þurfi að gera fleira en gott þykir. Gerum góða björgunarsveit betri og góðan félagsskap enn betri með fleiri virkum félögum og þá vita menn af hverju  "maður er í björgunarsveit"

Björn Ingi Óskarsson

Flettingar í dag: 33
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 192833
Samtals gestir: 39226
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 11:38:20