03.05.2012 10:51
Húnabjörg - Útkall

02.05.2012 12:56
1. maí
Nú eins og undanfarinn ár var farið í heimsóknarferð 1. maí og má segja að komin sé hefð á þessar ferðir hér hjá okkur í Strönd. Björgunarsveitin Húnar hefur farið í slíkar ferðir í mörg ár, en árið 2008 byrjuðu þeir að bjóða Strönd og Blöndu með í þessar ferðir sem eru ávalt mjög skemmtilegar og fræðandi.
Að þessu sinni var það bara mannskapur frá Húnum og Strönd sem fóru en enginn frá Blöndu. Í þessum ferðum sjá menn alltaf eitthvað nýtt og hvernig menn tækla hlutina á mismunandi hátt hjá hinum sveitunum ásamt því auðvitað að kynnast nýju fólki og víkka þar með tengslanetið. Í þetta skiptið var farið í heimsókn hjá nokkrum sveitum á höfuðborgarsvæðinu en þær voru, Kjölur á Kjalarnesi, Hjálparsveit Skáta í Garðabæ, Björgunarsveit Hafnarfjarðar og að lokum Hjálparsveit Skáta í Kópavogi. Allsstaðar fengum við mjög góðar móttökur, skoðuðum húsa og tækjakost og síðan var sest niður og spjallað um flest það er við kemur starfi sveitanna yfir rjúkandi kaffibolla.
Viljum við þakka öllum gestrisnina og Húnum fyrir góða ferð.
Hér eru myndir úr ferðinni.

Í kaffi hjá Kjalnesingum.
19.04.2012 18:59
Fékk í skrúfuna

- 1
