Færslur: 2012 Febrúar

21.02.2012 15:12

Æfingu frestað

Því miður verður að fresta þyrlubjörgunaræfingunni sem vera átti í kvöld.  Ástæðan er sú að ekki fengust kafarar til að fara með þyrlunni en á svona æfingum er ávalt verið með kafara sem hluta af áhöfn.  
Er þetta gert til að gæta fyllsta öryggis allra, bæði áhafnar á þyrlunni og líka þeirra sem í sjóinn fara.
Það gengur bara vonandi betur næst.

21.02.2012 08:21

Þyrlubjörgunaræfing

Áætlað er að halda æfingu með þyrlu Landhelgisgæslunnar í kvöld kl. 20 ef veður leyfir. Þessi æfing er búin að standa til í nokkurn tíma en ekki hefur orðið af henni þangað til nú. Ætlunin er sú að reyna að halda þessar æfingar nokkuð reglulega eða í það minnsta nokkrum sinnum á ári ef mögulegt er. Húnabjörg ásamt bát og mannskap frá Húnum á Hvammstanga munu taka þátt í æfingunni sem áætlað er að taki um það bil eina klukkustund.


15.02.2012 13:56

Vinnukvöld

Eins og kannski  flestir vita þá eru vinnukvöld hjá okkur einu sinni í viku á þriðjudögum kl. 20-22 og á sama tíma tökum við á móti einnota drykkjarumbúðum.  Mæting á þessi vinnukvöld er að jafnaði mjög góð eða á bilinu sjö til tíu manns og einstaka sinnum þegar mikið af sjómönnunum  okkar er í landi geta þetta verið upp í 15 manns eins og í gærkvöldi en þá var óvenju fjölmennt.  

Venjulega er lítið mál að finna eitthvað handa þessum mannskap að gera en þegar hópurinn er orðinn þetta mikil og ekki liggur mikið fyrir sem gera þarf getur málið vandast.  Því tóku nokkrir "gamlir" sjóhundar innan sveitarinnar sig til og fóru að kenna ungviðinu hnúta og fleira slíkt. Pelastikk, hestahnútur, línuhnútur og fleiri slíkir voru teknir fyrir og menn látnir spreyta sig í að hnýta þá þar til flestir ef ekki allir höfðu náð tökum á þeim.   

Höfðu bæði kennarar og nemar bara gaman af og auðvitað ekki hvað síst gagn því alltaf getur verið gott að kunna einhverja hnúta aðra en rembihnúta. Að þessu loknu og þegar búið var að ganga frá þeim dósum og flöskum sem komið höfðu var sest upp í fundarherbergi með kaffi og kíkt á nokkur vídeó, að því loknu var tekið til við að planleggja hvað gera ætti á næstunni  varðandi æfingaferðir og fleira slíkt.

Réttu handtökin æfð.


14.02.2012 13:29

Rýnifundur

Rýnifundur vegna leitar í Svartárdal var haldinn í gærkvöldi í húsnæði björgunarfélagsins Blöndu á Blönduósi.  Mæting var góð frá þessum fimm sveitum á svæði 9 og 10 sem að leitinni komu.  Farið var yfir allt sem að aðgerðinni kom og hvað vel hefði tekist og hvað betur mætti fara.  Eitt atrið var nokkuð rætt og var það að slíkar leitir væru í eðli sínu gjörólíkar því sem venja er þegar leitað væri að týndu fólki,  þarna væri hinsvegar verið að leita að einstaklingum sem ekki vildu láta finna sig.  Spannst nokkur umræða um öðruvísi leitaraðferðir í svona tilvikum og að sveitirnar þyrftu í raun að koma sér upp öðru skipulagi í svona leitum.

Slíkir rýnifundir eru ávalt haldnir eftir allar stærri leitir og aðgerðir,  tilgangurinn er að gera björgunarsveitirnar skilvirkari og að aðgerðir verði markvissari og að af mistökum megi draga lærdóm og byggja upp þekkingu sem svo nýtist vonandi síðar. 

11.02.2012 18:58

Opið hús

Opið hús var í Bjarnabúð í dag í tilefni af 112 deginum. Dagskráin hófst laust fyrir kl. 14 með hópakstri viðbragðsaðila um bæinn sem endaði svo niður í húsnæði sveitarinnar en þar var hægt að skoða búnað og tæki slökkviliðsins, sjúkrabíl RKÍ, ásamt tækjabúnaði og bílum björgunarsveitarinnar. Sjúkraflutningsmenn voru með dúkkur og sýndu skyndihjálp og einnig gat fólk fengið að spreyta sig á hjartahnoði.  Krökkum og reyndar fullorðnum líka var boðið upp á að prufa að fara í klifurbelti og láta svo hífa sig upp og síga svo aftur niður og fá þannig aðeins tilfinningu fyrir því hvernig sá búnaður virkar. Minnt var á mikilvægi neyðarnúmersins 112 og fyrir hvað það stendur ásamt því hvaða aðilar standa að því .  Boðið var upp á kaffi og vöfflur með rjóma, sultu og súkkulaði,  allt eftir smekk hvers og eins. Töluvert margir bæjarbúar lögðu leið sína í Bjarnabúð og er áætlað að á milli 90 - 100 manns hafi komið í heimsókn á þessum rúmu tveim tímum og er það bara ánægjulegt að svo margir sáu sér fært að heimsækja okkur.



09.02.2012 13:04

Strokupilta leitað

Sveitir af svæði 9 og 10 leituðu í gærkvöldi tveggja drengja sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði fyrr um daginn, drengirnir voru raunar þrír en einn hafði gefið sig fram við lögreglu áður en sveitirnar voru ræstar út.  

Frá Strönd fóru 10 manns á tveim bílum og einn svæðisstjórnarmaður í stjórnstöð á Blönduósi.  Leitarsvæðið var Svartárdalur en vitað var af ferðum þeirra þar eftir að einn þeirra hafði gefið sig fram við lögreglu skammt frá bænum Barkarstöðum .  

Leit beindist í fyrstu að útihúsum og sumarhúsum á svæðinu þar sem möguleiki var á að þeir gætu leitað skjóls en drengirnir voru frekar illa klæddir til útiveru.  Drengirnir fundust svo síðar um kvöldið í veiðihúsi við Skeggstaði en þar höfðu þeir brotist inn og leitað skjóls töluvert þrekaðir eftir útiveru enda illa búnir til slíks eins og áður sagði. 

Alls komu um 60 björgunarsveitamenn að leitinni og má einnig nefna að notast var við hitamyndavélar við leitina en það er sennilega í fyrsta skipti sem það er gert að einhverju ráði við leit hér um slóðir. Komu þær vel út þó svo þær hafi ekki gert útslagið í þetta skiptið.

08.02.2012 13:35

112 dagurinn

112 dagurinn er laugardaginn 11. febrúar og af því tilefni verður opið hús í Bjarnabúð, húsi björgunarsveitarinnar frá kl. 14 - 16.  Þar verður hægt að skoða tæki og búnað frá björgunarsveitinni, sjúkrabíl RKÍ  og bíl slökkviliðsins á Skagaströnd.  Kaffi, vöfflur og djús fyrir þá yngri.  Hvernig er að vera slökkviliðsmaður?  Viltu prófa að fara í slökkviliðsgalla?  Hvað er hjartahnoð?  Hvernig er klifurbúnaður notaður?  Hvað er TETRA?  Svör við þessum spurningum og mörgum fleiri getur þú fengið ef þú lítur við á laugardaginn hjá okkur og kynnist því sem þessir aðilar eru að fást við í sínu starfi.  

 

                  Björgunarsveitin Strönd, Skagastrandardeild RKÍ og Slökkvilið Skagastrandar.



05.02.2012 23:27

Húnabjörg - útkall

Rétt fyrir kl. 15 í dag kom beiðni um að sækja Sæfara SK 112 en hann hafði þá fengi í skrúfuna um 13 sjómílur vestur frá Skagaströnd.  Húnabjörg lagði skömmu síðar úr höfn og var komin að Sæfaranum laust fyrir kl. 16 og tók bátinn í tog.  Veður var ágætt, suðvestlægur 3-5 m/s og sæmilegt í sjóinn.  Gekk ferðin til baka tíðindalaust og kom Húnabjörg til hafnar á Skagaströnd með Sæfarann rétt fyrir kl. 18 eftir rétt um þriggja tíma ferðalag. 


Sæfari Sk 112 í togi

04.02.2012 12:34

Klifuræfing í íþróttahúsinu

Góð mæting var á fyrstu sameiginlegu klifuræfingu hjá björgunarsveitunum Strönd og Húnum í íþróttahúsinu á Skagaströnd  laugardaginn 4. febrúar. 
Það mættu um tíu manns frá þessum tveim sveitum og skemmtu sér við klifur í klifurveggnum í um tvær klukkustundir. Voru sumir að prófa þetta í fyrsta skipti en mjög lítil þjálfun hefur verið í klifri hér hjá okkur í Strönd en hjá Húnum er töluvert meiri reynsla og þekking sem þeirra menn miðluð fúslega til okkar hinna. 
Að æfingu lokinni vor allir mjög ánægðir með þetta framtak og er vonandi að þetta skili sér í meiri áhuga þeirra sem æfa vilja klifur því æfingin skapar meistarann í þessu eins og öðru. Að lokum viljum við þakka sveitarfélaginu fyrir afnot af þessari frábæru klifuraðstöðu sem við eigum hér í íþróttahúsinu okkar. Hér má sjá myndir sem teknar voru á æfingunni.


01.02.2012 12:30

Línur og klifur um helgina

Núna um helgina, eða nánar til tekið  laugardaginn 4. febrúar kl. 10:00 verður æfing í íþróttahúsinu á Skagaströnd í línum og klifri. Við hvetjum alla til að mæta og hafa gaman af þessu með okkur - og auðvitað læra helling líka. Mannskapur frá Húnum á Hvammstanga ætlar líka að vera með okkur á æfingunni.

ATH. breyttur tími,  kl. 10:00

Nánari upplýsingar og skráning er hjá Kristjáni Pétri í síma 847-3606. Það er mikilvægt að skrá sig svo við vitum hve margir mæta. 


  • 1
Flettingar í dag: 33
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 192833
Samtals gestir: 39226
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 11:38:20

Nánari upplýsingar

Nafn:

Björgunarsveitin Strönd

Farsími:

894 4006

Heimilisfang:

Bjarnabúð Hafnarlóð 6

Staðsetning:

545 Skagaströnd

Heimasími:

452 2621

Kennitala:

410687-2169

Tenglar