05.02.2012 23:27
Húnabjörg - útkall
Rétt fyrir kl. 15 í dag kom beiðni um að sækja Sæfara SK 112 en hann hafði þá fengi í skrúfuna um 13 sjómílur vestur frá Skagaströnd. Húnabjörg lagði skömmu síðar úr höfn og var komin að Sæfaranum laust fyrir kl. 16 og tók bátinn í tog. Veður var ágætt, suðvestlægur 3-5 m/s og sæmilegt í sjóinn. Gekk ferðin til baka tíðindalaust og kom Húnabjörg til hafnar á Skagaströnd með Sæfarann rétt fyrir kl. 18 eftir rétt um þriggja tíma ferðalag.

Sæfari Sk 112 í togi
Skrifað af BIO
Flettingar í dag: 33
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 192833
Samtals gestir: 39226
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 11:38:20
